Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Kennsluakademía opinberu háskólanna heldur ráðstefnu í Veröld – húsi Vigdísar, föstudaginn 22. nóvember 2024 klukkan 9:00-16:00.
Markmið Kennsluakademíunnar er að skapa vettvang fyrir umræðu um háskólakennslu. Gestgjafi ráðstefnunnar í ár er Félagsvísindasvið Háskóla Íslands.
Þema ráðstefnunnar er hvernig megi brúa bilið á milli framhaldsskóla og háskóla og ígrunda hvernig hægt er að koma til móts við nútímanemandann í háskóla.
Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem láta sig kennslu á háskólastigi varða, kennurum, nemendum og stjórnendum.
Ráðstefnan er þátttakendum að kostnaðarlausu en skráning er nauðsynleg. Skráning fer fram á vefsíðu Kennsluakademíunnar: kennsluakademia.hi.is