Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Umsækjendur um grunnnám geta fylgst með framvindu umsóknar sinnar í samskiptagáttinni, sem þeir stofna um leið og þeir senda inn umsókn. Athugið að lykilorð vegna umsóknar gildir ekki að Uglunni eftir innritun.
Innritunargjald vegna skólaársins 2024-25 er kr. 75.000 og er óafturkræft. Það er greitt í gegnum samskiptagáttina og telst nemandi innritaður þegar gjaldið hefur verið greitt. Eftir innritun fá nemendur sendar upplýsingar námskerfi skólans og innskráningu.
Nemendur eru hvattir til að kynna sér námsreglur skólans.
Mat á fyrra námi
Þeir nemendur sem óska eftir að fá fyrra háskólanám metið skulu sækja um það um leið og sótt er um skólavist. Einungis er unnt að fá heil námskeið metin, ekki einstaka hluta þeirra. Í umsókninni þarf að koma fram hvaða námskeið nemandinn óskar að fá fellt niður, ásamt lýsingu á því námskeiði sem hann hefur tekið annars staðar og telur samsvarandi. Miðað er við lágmarkseinkunnina 6,0 og námið þarf að hafa verið stundað innan síðustu 10 ára. Staðfesting á hinu fyrra námi þarf að fylgja með umsókninni. Sjá nánar hér.
Nýnemadagar verða 26.-27. ágúst 2024 - skyldumæting er þá daga. Dagskrá Nýnemadaga
Fyrstu kennslulotur hefjast svo miðvikudaginn 28. ágúst.
Skóladagatal er birt með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar. Önninni er skipt í tvær álíka langar stuttannir, og námskeið standa ýmist yfir hana alla
eða einungis aðra stuttönnina.
Kennsla á haustönn 2024 hefst kl. 9:00 mánudaginn 26. ágúst. Prófum á haustönn lýkur föstudaginn 12. desember. Sjúkra- og endurtökupróf verða 6. - 7. janúar.
Kennsla á vorönn 2024 hefst 8. janúar.
Þeir nemendur sem eru í blönduðu námi (fjar- og staðnámi) eru kallaðir heim að Hólum í staðbundnar lotur. Misjafnt er eftir námsleiðum hvenær þær eru,
sjá upplýsingar frá deildunum. Allir nýnemar geta þó reiknað með að námið á haustönn hefjist með staðbundinni lotu/nýnemadögum og að reiknað verði með að þeir hefji námið á Hólum/Sauðárkróki nema um óhjákvæmileg forföll sé að ræða.
Skólaárið hjá Ferðamáladeild
Skólaárið hjá Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
Til umsækjenda í Hestafræðideild
Netfang og kennsluvefir
Allir nemar Háskólans á Hólum fá úthlutað netfangi, og er ætlast til að þeir noti það í námi sínu við skólann. Sömu aðgangsupplýsingar gilda fyrir innri vef skólans, Ugluna. Canvas kennslukerfið er notað í öllum námskeiðum sem kennd eru við skólann.
Bækur
Bóksala stúdenta, Skagfirðingabúð, Lífland og Heimkaup (rafbækur) fá upplýsingar um hvaða bækur ætlast er til að nemendur útvegi sér. Erlendar netverslanir selja líka margar af þessum bókum. Sífellt fleiri kennslubækur má fá sem rafbækur.
Húsnæði
Nemendagarðar Háskólans á Hólum starfa sjálfstætt. Þeir staðnemar sem hyggja á búsetu á nemendagörðum þurfa sjálfir að annast umsókn um slíkt á netsíðu nemendagarðanna. Umsóknarfrestur fyrir nýnema rennur út 25. júní. Frekari upplýsingar eru veittar á þjónustuborði háskólans, sími 455 6300 eða holar@holar.is
Nemar í blönduðu námi sem þurfa á gistingu að halda í staðlotum þurfa að snúa sér til Ferðaþjónustunnar á Hólum booking@visitholar.is
Menntasjóður námsmanna
Á meðan á skilatímabili einkunna stendur, sér Menntasjóður námsmanna um að sækja upplýsingar um fjölda lokinna eininga í nemendaskrárkerfi skólans, Ugluna. Þurfi nemendur á slíkum einingaskilum að halda utan þess tíma, t.d. á sumarönn eða eftir upptökupróf, þurfa þeir að óska eftir því við kennsluskrifstofu.