Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Aðstaða fiskeldis- og fiskalíffræðideildar Háskólans á Hólum er til húsa að Háeyri 1 á Sauðárkróki. Húsnæðið skiptist í fjóra meginhluta: skrifstofurými, rannsóknar- og kennslustofur, eldisrými og þróunarrými.
Bókleg kennsla fer að mestu fram í kennslustofum í Verinu.
Vinnuaðstaða og kaffistofur: Á Sauðárkróki er sameiginleg kaffistofa fyrir nemendur og kennara.
Í Verinu er sá hluti bókasafnsins er snýr að fiskum, fiskeldi og vatnalífi hýstur einnig eru fagtímarit um sérsvið skólans aðgengileg þar. Bókasafnið er auk þess þátttakandi í verkefni um landsaðgang að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum hvar.is, leitir.is einnig sem hægt er að fá aðstoð hjá bókasafnsfræðingum Háskólans á Akureyri, hægt er að hafa samband í tölvupósti bsha@unak.is eða síma 460 8050, á afgreiðslutíma bókasafns HA sem er alla virka daga frá 8.00 - 16.00.
Nemendur í framhaldsnámi fá til afnota skrifborð og bókahillur, þar sem þeir geta unnið á eigin tölvur.