Nordic Bridge

Háskólinn á Hólum tekur þátt í verkefni sem styrkt er af Northern Periphery and Arctic sjóðnum (NPA). Verkefnið hefur hlotið nafnið Nordic Bridge og eru samstarfsaðilar NORD University, sem leiðir verkefnið, Lapland University of Applied Science, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE), NCE Aquaculture og Bodø Næringsforum. Um er að ræða forverkefnisstyrk þar sem grunnur verður lagður að stærra verkefni en umsókn. Skipulagðar hafa verið þrjár vinnustofur, í Noregi, á Íslandi og í Finnlandi. Vinnustofan í Noregi hefur nú þegar farið fram en áætlað er að halda vinnustofu á Akureyri þann 15. september nk og síðasta vinnustofan verður svo haldin í nóvember í Finnlandi.

Markmið Nordic Bridge er að búa til rafrænan vettvang þar sem opinberir og einkaaðilar geta sett fram bæði sértæk eða almenn vandamál þar sem óskað er eftir innsýn og sérfræðiþekkingu háskólasamfélagsins. Þá verða rannsóknaköll, verkefnasamstarf og nýjungar frá háskólasamfélaginu birt í gáttinni til að leita eftir áhuga frá opinberum og einkaaðilum. Með vefgáttinni verður samstarf háskóla, atvinnulífsins og nærsamfélagsins auðveldara. Í raun er um að ræða sérstakan vettvang þar sem þessir hópar geta kynnst og skipulagt aðgerðir til að leysa vandamál og deila hugmyndum sín á milli. 

Tengiliður og þátttakandi í verkefninu er Anna Guðrún Edvardsdóttir, rannsóknastjóri. Hægt er að kynna sér verkefnið nánar á slóðinni https://www.holar.is/is/rannsoknir/nordic-bridge# eða hafa samband við verkefnastjóra í tölvupósti arun@holar.is.