Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Dagana 11. og 12. apríl var haldin lítil ráðstefna innan Hestafræðideildar Háskólans á Hólum. Þetta er ákveðin uppskeruhátíð þar sem nemendur á 3ja ári í BS námi í reiðmennsku og reiðkennslu koma á framfæri afrakstri af mikilli vinnu með því að kynna eigin rannsóknarverkefni í BS námskeiði.
Ráðstefnan var haldin í gamla íþróttasalnum í aðalbyggingu Háskólans á Hólum, og var opin fyrir alla starfsmenn Háskólans á Hólum, sem og 1.árs nemendur í Hestafræðideild. Hins vegar eru nemendur á 2.ári í Hestafræðideild nýlega farnir í verknám vítt og breitt um land og gátu því ekki nema einstaka úr þeirra hópi sem eru stutt frá staðnum mætt.
Nemendur geta valið að skrifa og kynna verkefnin á íslensku eða ensku.
Rannsóknarverkefnin sem nemendur hafa unnið að bera eftirfarandi heiti:
1. Ósamhverfa í hreyfingum á brokki hjá íslenskum reiðkennslu hestum - áhersla framfætur
2. Samanburður á vinnuaðstæðum og hestaþjálfun menntaðra íslandshesta þjálfara á Íslandi og í Sviss
3. Förgunarástæður íslenskra hrossa.
4. A Descriptive Analysis of Equine Tourists' Perceptions of Horse Welfare in Africa and in Iceland
5. Comparison of heart rate in horses during trailer transport with or without access to hay.
6. Assessing the frequency of hind limb movement asymmetry in a group of Icelandic riding horses used in horse university
7. Hversu mikilvægur er taktur á tölti í íslenskum ferðahesti?
8. Perception of Form under Rider by professionals in the Icelandic Horse World – An analysis
9. Samanburður á lífeðlisfræðilegri svörun í endurheimt eftir staðlað þjálfunarpróf á tölti og hægu stökki hjá íslenskum hestum
10. Correlation between stallions age receiving 1st prize in a breeding show and competition attendance at Íslandsmót and Landsmót hestamanna
11. Hlutlægar mælingar og umsagnir um hraða og skreflengd á tölti hjá íslenskum kynbótahrossum
12. A comparison of the physiological response to tölt and canter in the Icelandic horse
13. Könnun á viðhorfi keppnisknapa til Gæðingalistar
14. Tíðni og áhrif kýrstökks á árangur íslenskra skeiðhesta í 150 og 250 metra skeiði
15. Líkamlegt álag íslenskra hrossa við vatnsbrettaþjálfun