Karfan er tóm.
- Háskólinn
- Starfsfólk
- Inspera
- Nám
- Ferðamáladeild
- Fiskeldis- og fiskalíffræðideild
- Hestafræðideild
- Hagnýtar upplýsingar
- Rannsóknir
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Ingibjörg Huld Þórðardóttir hefur verið ráðin í stöðu kennslustjóra við Háskólann á Hólum og kemur hún til starfa þann 1. ágúst nk. Inga Huld mun hafa faglega umsjón með kennslumálum skólans, svo sem þróun nýrra námsleiða, samræmingar á kennsluskrám og starfi kennslunefndar.
Inga Huld hefur starfað sem sérfræðingur í fræðsluþjónustu Skagfirðinga síðustu ár og verið hluti af þverfaglegu teymi fjölskyldusviðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Inga Huld gegndi einnig stöðu talmeinafræðings sveitarfélagsins. Hún er menntuð í kennslufræðum og starfaði sem kennari um árabil áður en hún fór í nám í talmeinafræði. Þar fyrir utan hefur Inga Huld starfað lengi í stjórnmálum og hefur því góða innsýn inn í opinbera stjórnsýslu.
„Við hjá Háskólanum á Hólum erum mjög ánægð með að hafa fengið Ingu Huld til liðs við okkur og bjóðum hana velkomna. Hún hefur víðtæka reynslu á sviði kennslumála en einnig á sviði opinberrar stjórnsýslu sem er ekki síður mikilvægt fyrir háskólann. Það eru spennandi tímar framundan í háskólanum sem snúa m.a. að þróun nýrra námsleiða og þá er mikilvægt að hafa gott og reynslumikið fólk með sér“, segir Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum.