Brautskráning frá Háskólanum á Hólum

Föstudaginn 7. júni var brautskráningarathöfn Háskólans á Hólum haldin í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð. Hólfríður Sveinsdóttir rektor flutti ávarp og Margrét Nilsdóttir flutti ávarp fyrir hönd nemenda. 

Frá skólanum brautskráðust einstaklingar frá sjö þjóðlöndum. Auk Íslands voru nemendur frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Þýskalandi, Póllandi og Sviss.

Alls brautskráðust 43 nemendur. Frá Ferðamáladeild brautskráðust 25 einstaklingar, átján með diplómu í viðburðastjórnun, einn með BA gráðu í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta og sex með BA gráðu í ferðamálafræði.
Frá Fiskeldis- og fiskalíffræðideild brautskráðust þrír einstaklingar, með diplómu í fiskeldsfræðum. 
Frá Hestafræðideild brautskráðist 15 einstaklingar, með BS í reiðmennsku og reiðkennslu. Athöfnin var gleðistund, en veður hafði mikil áhrif á daginn og óvænt kuldakast með tilheyrandi snjó truflaði mikið. Þess vegna var ákveðið með stuttum fyrirvara að streima athöfninni og voru margir sem fylgdust með í beinni útsendingu. 

Um tónlistarflutning við athöfnina sáu Emelíana Lillý Guðbrandsdóttir og Eysteinn Ívar Guðbrandsson. 

 

Að athöfn lokinni bauð háskólinn nýbrautskráðum Hólamönnum, aðstandendum og starfsfólki til veglegrar veislu sem Sauðárkróksbakarí sá um.
Við óskum öllum nemendunum sem brautskráðust og fjölskyldum þeirra í dag hjartanlega til hamingju!

 
Myndir frá brautskráningunni eru teknar af Ingunni Ingólfsdóttir.