Rannsóknarstefna Háskólans á Hólum

Gildissvið og tilgangur

Rannsóknarstefna Háskólans á Hólum setur fram grunngildi og leiðarljós háskólans á sviði rannsókna. Hún byggir á þeirri sýn að fræðilegt starf felist í leit að sannleika með gagnrýninni hugsun og fræðilegum vinnubrögðum. Akademískt frelsi og ábyrgð í vinnubrögðum eru höfð að leiðarljósi.

Markmið stefnunnar er að skapa sameiginlegan ramma fyrir rannsóknarstarf við háskólann og undirstrika náin tengsl rannsókna og kennslu. Stefnan leggur áherslu á hlutverk rannsókna við að efla þekkingu og stuðla að velferð og þróun íslensks samfélags. Hún er sett fram sem almenn stefnumörkun og skilgreinir ekki tiltekin rannsóknarsvið eða forgangsröðun, þar sem slík ákvörðun liggur hjá fræðafólki innan hverrar deildar í samræmi við eigin rannsóknarstefnu og fræðasvið deilda. Rekstrarleg atriði, verklag og reglur um framkvæmd rannsókna eru skilgreind í gæðahandbók Háskólans á Hólum.

Ábyrgð

Háskólinn á Hólum ber ábyrgð á því að skapa fræðilegt umhverfi sem styður við vandaðar rannsóknir, verndar akademískt frelsi og stuðlar að heiðarleika í rannsóknum í samræmi við lög, siðareglur og viðurkennd fræðileg viðmið.

Fræðafólk ber ábyrgð á að stunda rannsóknir af heilindum, fylgja fræðilegum viðmiðum og leggja sitt af mörkum til þróunar þekkingar á sínu sviði. Akademískt frelsi er ávallt nátengt ábyrgð og felur ekki í sér undanþágu frá almennum reglum eða siðferðilegum kröfum. Það felur í sér rétt og skyldu til að birta niðurstöður rannsókna, að því gefnu að þær uppfylli kröfur um faglega ritrýni.

Deildir bera ábyrgð á mótun síns rannsóknarstarfs innan fræðasviða háskólans, þar á meðal forgangsröðun og starfsháttum, í samræmi við þessa stefnu. Skipulag og stjórnun rannsókna byggist á samráði og faglegu sjálfstæði innan fræðasamfélagsins.

Gildi

Rannsóknir við Háskólann á Hólum byggjast á eftirfarandi gildum:

Akademískt frelsi
Rannsóknir skulu fara fram með fullri virðingu fyrir akademísku frelsi, í samhengi við fagleg heilindi, siðferðilega ábyrgð og alþjóðleg viðmið.

Gæði og fagmennska
Lögð er áhersla á vandaðar rannsóknir sem byggja á gagnrýninni hugsun, traustum aðferðum og faglegri ritrýni.

Opin vísindi
Háskólinn leggur áherslu á opna miðlun rannsókna og notkun opinna gagnageymslna.

Ábyrg framkvæmd rannsókna
Rannsóknir skulu fara fram með virðingu fyrir siðferðilegum sjónarmiðum, vandaðri söfnun og úrvinnslu gagna og ábyrgð gagnvart samfélagi og umhverfi.

 

Stefnumið

Á grundvelli þessara gilda vinnur Háskólinn á Hólum að eftirfarandi markmiðum:

  • Að tryggja og efla akademískt frelsi og heiðarleika í rannsóknum.
  • Að efla vandaðar rannsóknir á fræðasviðum háskólans í samræmi við alþjóðleg viðmið.
  • Að samþætta rannsóknir og kennslu sem órjúfanlega þætti fræðastarfs og tryggja þátttöku nemenda í rannsóknum á öllum stigum.
  • Að efla alþjóðlegt samstarf og þátttöku í fræðasamfélaginu og leggja þannig grunn að hágæðarannsóknum og alþjóðlegum sýnileika.
  • Að efla samstarf við samfélagið, atvinnulífið, opinberar stofnanir og aðila utan háskólans.

 

Aðgerðir

Háskólinn leitast við að ná markmiðum þessarar rannsóknarstefnu með viðeigandi akademísku umhverfi, skipulagi og stoðkerfi. Leitast er við að:

  • Viðhalda skipulagi sem styður sjálfstæðar rannsóknir, fræðilegt samstarf og samráð.
  • Tryggja umgjörð með skýru verklagi sem styður ábyrga rannsóknarhætti og siðferðilega ígrundun.
  • Styðja miðlun rannsókna með birtingu, geymslu gagna, fræðilegri umræðu og þátttöku í samfélaginu og atvinnulífinu.

Rannsóknarnefnd fer árlega yfir stefnuna, framkvæmd hennar og hvort markmið hennar hafi náðst.

Endurskoðun

Rannsóknarstefnan verður endurskoðuð í tengslum við heildarstefnu háskólans og breytingar á regluverki háskólans sem hafa áhrif á rannsóknarstarf.

Samþykkt á háskólaráðsfundi 21. maí 2026.


Rannsóknarstefna á íslensku

Research policy in english