Stofnað var til biskupsstóls og
skóla á Hólum árið 1106. Í ár
eru því 900 ár síðan og því er ástæða
til að halda veislu! Að afmælishaldinu standa
Hólaskóli, vígslubiskup Hólastiftis
og Hólanefnd. Hér birtist dagskrá afmælisársins
og fréttir af atburðum. Allir eru hvattir til að fylgjast
vel með og taka þátt í afmælishaldinu. Ábendingar
eru vel þegnar og berist Málfríði
Finnbogadóttur.
Ávörp vígslubiskups
og rektors. |
Á Jónsmessu Hólabiskups -
brot
Ef til vill nú önnur
kemur
öld, sem feðradáðir nemur,
þroski vorrar þjóðar vex.
Biskups Jóns þá stytta á stalli
stendur reist á kirkjupalli,
tvö þúsund og talan sex.
Þá mun hátíð haldin
verða
Hólastóls og orsök ferða
út frá hverri sýslu og sveit.
Ferðamarkið heim til Hóla,
heilags Jóns að vitja skóla –
framtak nýtt á fornum reit.
Friðrik Friðriksson orti árið 1953, þá 85 ára
gamall. |