| Verslun | |
Ummerki um innflutningÞó nokkuð hefur fundist af innfluttum gripum við Kolkuós sem gefa vísbendingar um hvaða vörur voru fluttar inn, hvaðan þær komu og hvaða vörur var verslað með. Hægt hefur veið að greina uppruna nokkurra gripa. Þeir eru kambur úr hjartarhorni frá Skandinavíu og silfurpeningar frá Englandi og Þýskalandi. |
![]() |
|
Leirker, brýni og bökunarhellur voru iðulega flutt inn því hér á landi fékkst ekki efniviður í slíka gripi. Leirinn í jarðveginum hér hentar ekki til leirkerjagerðar og erfitt er að vinna íslenska grá- og blágrýtið. Ílát úr steini voru þess vegna gjarnan gerð úr klébergi, sem er afar mjúk og auðunnin bergtegund. Brýni voru hins vegar gerð úr innfluttu flögubergi sem er ummyndað berg og auðþekkjanlegt á glitrandi ögnum. |
| Gripir úr steini voru stundum fluttir inn fullunnir en einnig var algengt að bergið væri flutt inn og unnið hér. Kléberg og flöguberg sem hefur fundist á Íslandi er aðallega frá Noregi. | |
Hlið Hólabiskups að umheiminumÞað voru þó ekki aðeins nauðsynjavörur sem voru fluttar inn heldur hafa fundist leifar ýmiss munaðarvarnings við Kolkuós. Þess á meðal eru bein úr smáhundi. Smáhundar voru hafðir sem stöðutákn og vinsælir meðal yfirstéttarinnar á miðöldum. |
|
| Líklegt er að mikið af þeim munaðarvarningi sem fór um höfnina í Kolkuósi hafi verið ætlaður biskupsstólnum á Hólum. Nokkuð af innfluttum varningi hefur þurft til staðarhaldsins, enda var biskupsstóllinn alþjóðleg stofnun. Meðal innfluttra gripa sem hafa fundist á Hólum eru gler- og leirkerabrot úr dýrmætum borðbúnaði og vínflöskum. Þar hafa einnig fundist leifar kakalofns sem fluttur var þangað frá Þýskalandi á 16. öld. Slíkir ofnar voru fáséður munaður. Ofninn stóð í prenthúsinu á Hólum, en þar var starfrækt prentsmiðja með hléum um tveggja alda skeið. | ![]() |
|




