Facebook

Twitter

 

Nýtt efni á vefnum

Það sem moldin geymir

Við Kolkuós í Skagafirði leynist ýmislegt í jörðu. Þar var á öldum áður höfn og verslunarstaður en ummerki þeirra tíma eru nú löngu horfin augum okkar. Sé leitað undir yfirborðið má hins vegar finna leifar fornra tíma og lesa úr þeim gleymdar sögur.

eldstaedi

Uppgraftarsvæðið

Fornleifauppgröftur

Fornleifarannsókn hefur farið fram við Kolkuós síðan árið 2003. Uppgraftarsvæðið er á tanga milli ár og sjávar en minjarnar þar eru í töluverðri hættu frá brotsjó. Rannsóknin hefur leitt í ljós að umfangsmikil starfsemi var við Kolkuós frá 10. öld fram á þá 16. Þar var ekki einungis stunduð verslun heldur var ýmis varningur einnig framleiddur þar.

Stórt minjasvæði

Minjasvæðið við Kolkuós afmarkast þó ekki af tanganum. Vísbendingar eru um að athafnasvæðið hafi færst innar á land í tímans rás. Þó að nú þegar hafi fundist mun meiri og merkari minjar á svæðinu en áætlað var í fyrstu er ljóst að þær eru aðeins hluti af því sem þar leynist. Því verður spennandi að sjá hvað frekari rannsóknir við Kolkuós munu leiða í ljós á komandi árum.